Sunday, March 23, 2008

Náttúruvernd

Það er ísköld pólitík og skoðanakúgun sem veldur því að náttúrsinnar sem mótmæla samkvæmt sinni sannfæringu, fá hvorki pláss í fréttatímum né í blöðum núorðið. Það er á ýmsan hátt gert eins lítið úr öllum gagnrýnisröddum og fjöldafundum sem boðað er til. Reynt er að láta líta út sem fólk hafi lítin sem engan áhuga á þessu brölti og almenningi sé nóg boðið að vita til þess að fullfrískt fólk sé ekki að sinna sinni vinnu og hreinlega að slæpast. Á sama tíma og verið er að sökkva hálendi landsins og drepa fólk í Tíbet þá skuli þjóðin vera á vakin og sofin á endalausri vakt yfir því hvort Jónína fái sigur í tölvupósta eitthvað fyrir evrópudómstólum.

Merkilegasta frétt, að mati fjölmiðla, þótti þegar málningu var hellt á kínverskar sendiráðströppur. Þessi málning átti ekki að þurfa til við að ná athygli fjölmiðla en það er víst gömul saga og ný að það neikvæða virðist bera með sér meiri fréttamat en það jákvæða. Hver vill að þjóð búi í hernumdu landi? Til að stofna ekki viðskiptum í hættu líta allir sem kjörnir eru sem andlit þjóðarinnar í aðra átt. Með því er verið að segja að gróði íslenskra fyrirtækja er mikilvægari en mannréttindi og verðið fyrir þennan gróða er að þegja og sýna enga andstöðu við gerðir kínversk stjórnvalda í Tíbet.

Það er umhugsunarefni hvað forseti vor og embættismannastóðið er statt í afstöðu sinni til stjórnvalda í Kína og Ísrael.

Tuesday, March 11, 2008

Kaffi

Það er athyglisvert að kaffi hefur á sér svipað orðspor og vinsæll stjórnmálamaður. Allir virðast vera hrifnir en mjög margir efast um hollustu drykksins. Áhrifin af drykknum eru einnig sláandi lík en of margir bollar á dag færa sjaldnast mikla hamingju. Einhverjir nota kaffi til að vakna og enn aðrir til að hvetja seinvirka maga- og þarmastarfsemi en það er líklega ekki mikið um það rætt. Þá eru fráhvarseinkennin einnig þekkt en eftir mikla kaffineyslu eru líkur á höfuðverk sem getur staðið í viku sem er sá tími sem líkaminn þarf til að hreinsa út og ná jafnvægi. Eftirá verður líðanin betri en fyrir kaffiævintýrið. Það virðist vera sem við séum að ganga í gegnum þetta höfuðverkjatímabil en við þurfum bara að drekka nóg vatn og láta þetta ganga yfir.

Sunday, March 09, 2008

Auglýsingar

Ég hef veitt athygli nokkrum auglýsingum sem hafa hreinlega ekki gengið upp á einn eða annan hátt. Lítum á nokkur dæmi: Heimili án heimavarnar er opið hús auglýsir Securitas. Það er nú þannig að þegar fólk hefur lokað gluggum og læst hurðum er heimilið ekki lengur opið. Dyralæsingar, stormjárn og krækjur hlýtur að teljast til almennra heimavarna þannig að hver sem er getur ekki gengið inn. Er verið að segja fólki að það þurfi að hafa læsingar á útihurðum sínum? Það skín í heimspekilegan hroka á því hvernig á að túlka orð. Þessi setning er e.t.v. afrakstur mikillar vinnu en fyrir venjulegt fólk er þetta argasta bull.

S 24 auglýsir að yfirdráttarlán séu þannig að fólk spari. Það er afar óheppilegt að tengja yfirdrátt við sparnað. Það er nú svo og hefur verið að yfirdráttarlán bera einhverja hæstu vexti í íslenska bankakerfinu. Það hlýtur að vera ljóst að yfirdráttarlán getur aldrei verið fólki sparnaður. Þó svo nokkrum prósentum muni í okurvöxtum á yfirdráttarlánum milli banka er heldur ekki hægt að tala um neinn sparnað í því að borga hagstæðustu okurvextina að yfirdráttarlánum. Hvers vegna eru bankar að auglýsa þessa óhagstæðu vexti? Trúverðuleikinn er ekki til staðar þegar kemur svo að því að auglýsa sparnað.

Stundum auglýsa fyrirtæki eitthvað á bullmáli og allir eiga að hlæja og hlæja. Einhverjar rannsóknir hafa sýnt að komi auglýsing fólki til að hlæja eða brosa virki hún betur en aðrar sem eru ekkert fyndnar. Þessar upplýsingar virðast hafa borist inn á borð hjá Sláturfélagi Suðurlands. Útkoman: Pulsaðu þig upp. Það var ekki fyrr en klámráðsefnunni sem halda átti í Reykjavík á síðasta ári var aflýst að upp rann fyrir mér hvað þetta gæti hugsanlega þýtt. Auðvitað ætluðu allir að pulsa sig upp hérna. Clinton hafði verið hérna og einhverjir sögðu að hann hefði pulsað sig upp en aðeins með sinnepi. Nú var heil ráðstefna sem ætlaði að pulsa sig upp og kannski með öllu. Tveir menn í potti, ósammála um ýmislegt en sættast með því að pulsa sig upp er vel leikin en vekur ekki upp neitt hungur hjá mér.